Nú er komið að okkur!
3.2.2009 | 22:43
Kæru skólasystur og bræður, nú er okkar tími kominn, eins og sumra. Við erum hér með komin í fullorðinna manna tölu þ.e. við erum "aðal" MA Jubilantarnir þetta árið. Við eigum sem sagt að sjá um hátíðahöldin á Akureyri þann 16. júní n.k.
Aðalmarkmiðið er reyndar að skemmta okkur en hitt er metnaðarfullt og skemmtilegt verkefni.
Nánari upplýsingar munu birtast hér á síðunni fljótlega. Nefndir eru rétt að komast af stað og verið er að safna netfangalistum og fá fólk til starfa.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.